Miðvikudagur 11. júní 2025
Spáin fór í hundanna vegna upplausnar á síðasta starfsmannafundi. Afsakið þetta
1. Fundargerð nr. 86 – “Bestun spákerfa, samráð (?) og almennir starfshættir”
Dagsetning: 11. júní 2025, miðvikudagur
“Starfsmenn” mættu á skrifstofuna kl. 08:00, þó enginn vissi hver hafi sent kall.
Ljós voru í gangi. Það var heitt á könnunni.
Mælt var með því að halda ótrauð áfram “fram að næsta hléi”. Enginn vissi hvenær næsta hlé yrði.
Það þurfti að róa einn starfsmann sem var æstur og reiður yfir auglýsingum frá ónefndu útivistarfyrirtæki og tals um leynilegt samráð og fákeppnissamkrull við veður.is
Spá fyrir lengra komna:
Fuglar munu syngja í takt við innri öskur jarðarinnar – mælt með heyrnartólum.
Þetta er dagur þar sem veðrið sjálft virðist hafa lesið bók sem enginn hefur skrifað. Öll eðlileg merki um árstíðir, hitastig og loftgæði eru til staðar, en með undirliggjandi tóni sem ekki var áður. Ef þú finnur fyrir því að skugginn þinn hreyfist örlítið eftir að þú stoppar, þá er það í samræmi við spánna. Í loftinu er feimnisleg spenna, eins og eitthvað ætli að gerast – en það gerir það ekki. Það vill bara að þú haldir það. Fólk sem gengur út í dag lýsir upplifun sinni sem mjúkri, en með brotum af annarri veruleikaskynjun. Haltu dagbók. Taktu myndir sem þú horfir aldrei á. Þegar kvöldið kemur, breytist veðrið ekki, en það gerir samt eitthvað sem minnir á breytingu. Þú ert ekki að ímynda þér neitt. En þú ert heldur ekki að sjá það sem raunverulega er þar.